Til baka í fréttir
29. okt. 2026

Ertu klár í haust- og vetrargöngurnar?

Nú þegar farið er að dimma og kólna er gott að huga að búnaðinum fyrir göngurnar. Hér deili ég einföldum ráðum um hlýjan klæðnað, höfuðljós og hálkubrodda – og hvernig þú getur nýtt það sem þú átt og bætt við smám saman.

Það er svo yndislegt að komast út á þessum árstíma og með hlýjum fötum og nokkrum góðum hlutum í bakpokanum verður gangan bæði þægilegri, ánægjulegri og öruggari. Hér eru mín helstu ráð fyrir göngurnar okkar. Höfuðljósið fram úr skúffunni! Gott höfuðljós er einn af mikilvægustu fylgihlutunum í myrkrinu. Áður en þú kaupir þér nýtt er sniðugt að athuga hvort eitt leynist á heimilinu eða hvort þú getir fengið lánað hjá vinum eða fjölskyldu. Prófaðu ljósið áður en þú leggur af stað, athugaðu að það lýsi og mundu að hlaða það eða yfirfara rafhlöðurnar. Klæðum okkur í lög - ullin alltaf best! Ef ég ætti að velja eitt ráð um klæðnað væri það þetta: klæddu þig í lög sem þú getur auðveldlega farið úr og í og ullin næst líkamanum! Í þykkri dúnúlpu getur manni orðið alltof heitt á göngu en svo kalt um leið og maður fer úr henni. Með fleiri og þynnri lögum er auðveldara að stilla hitann eftir veðri og áreynslu. Hlý úlpa getur hins vegar verið dásamleg í bakpokanum þegar við stoppum. Næst líkamanum finnst mér ullin sérstaklega góð. Merínóullartoppur eða brjóstahaldari, ullarbolur og síðar ullarnærbuxur geta gert mikið fyrir þægindin. Ullarnærbuxur eru líka einstaklega notalegar á köldum dögum! Millilagið heldur á okkur hita. Það getur verið ullarpeysa eða flíspeysa og hlýjar en liprar buxur. Ysta lagið ver okkur fyrir vindi og regni. Vind- og vatnsheldur skeljakki og skeljabuxur koma sér vel í roki, rigningu og slyddu. Það þarf auðvitað ekki öll þessi lög í hverja göngu. Við veljum eftir veðri og stillum af á leiðinni – helst áður en okkur verður of heitt og við förum að svitna mikið. Og gleymum ekki eyrnabandi eða húfu og góðum vettlingum. Auka vettlingapar í pokanum getur líka verið algjör lúxus. Hlýjar tær gera gönguna betri, Góðir ullargöngusokkar eru í miklu uppáhaldi hjá mér, til dæmis frá Smartwool. Ullin hjálpar til við að jafna hitann og heldur vel einangrun þó að hún verði rök. Góðir skór sem henta færðinni skipta líka máli. Veldu gönguskó sem henta þér en ekki eltast við ákveðið merki. Mikilvægt að gefa sér góðan tíma í að máta nokkrar gerðir og ganga um í þeim í búðinni. Broddar í bakpokann Þótt það sé autt fyrir utan heima getur verið hált á stígunum okkar. Þess vegna er gott að hafa hálkubrodda meðferðis þegar farið er að frysta. Mér finnst þægilegast að vera með brodda sem auðvelt er að teygja yfir skóna, taka af og setja aftur á eftir færðinni. Margir henta bæði á hlaupaskó og gönguskó, en passa þarf að velja rétta stærð fyrir skóna sem á að nota. Eitt dæmi eru Kahtoola EXOspikes, sem fást t.d. Í Hlaupár og Fjallakofanum. Þeir eru ætlaðir í hlaup og göngur á stígum og hafa reynst mér vel. Geymdu broddana í litlum poka í bakpokanum svo þeir séu alltaf meðferðis. Það er miklu þægilegra að geta skellt þeim á þegar hálkan birtist en að uppgötva að þeir séu heima í forstofu. Stafir fyrir auka stuðning, Sumum finnst gott að ganga með stafi, sérstaklega á ójöfnu undirlagi eða þegar dimmt er orðið. Þeir geta veitt auka stuðning og öryggistilfinningu, en koma ekki í stað brodda þegar hált er. Ef þú hefur ekki prófað göngustafi er tilvalið að fá lánaða og sjá hvernig þér líkar. Smá notalegheit í bakpokann Aukalag, brodda, þurra vettlinga og sokka og kannski brúsa með heitu tei. Það er eitthvað svo gott við að stoppa aðeins, fá sér heitan sopa og njóta þess að vera úti. Öryggisbúnaður í hverri æfingu Öryggisbúnaður sem þarf að hafa á sér í hverri æfingu: álteppi, hælsærisplástrar eða second skin og orkustykki (Snickers eða eitthvað orkuríkt). Álteppið og plástrarnir fást í næsta apóteki og eru mjög létt og fyrirferðarlítil. Þú þarft ekki að kaupa allt í einu Byrjaðu á að kíkja í fataskápinn. Kannski áttu nú þegar miklu meira sem nýtist en þú heldur. Fáðu lánað, prófaðu þig áfram og bættu við smám saman eftir því sem þú finnur hvað hentar þér. Náttúruskvísur erum með afslætti hjá Fjallakofanum, Hlaupár, Fætur toga og Sportís sem gott er að muna eftir þegar kemur að kaupum. Og góður útivistarbúnaður er auðvitað tilvalinn á afmælis- eða jólaóskalistann! Kíkjum á veður og færð áður en við leggjum af stað, klæðum okkur eftir aðstæðum og höldum áfram að njóta útiverunnar saman. Hlakka til að sjá þig í næstu göngu!